Leita í fréttum mbl.is

Gaur (08.09.07)

Maður mér nákominn hefur verið að dunda við það undanfarin ár að endurnýja kynni sín af íslensku, en tungumálið talaði hann sem krakki. Þetta hefur gengið með afbrigðum vel, svo að nú talar hann hið ástkæra ylhýra með miklum glæsibrag. Netið hefur komið sterkt inn í þessari endurmenntun, en viðkomandi er búsettur erlendis, og með því að lesa daglegar fréttir af íslenskum fréttasíðum, sem og íslenskar bækur og blöð, hefur íslenskan komið smám saman aftur.

SEM háskólamenntaður í íslensku fagna ég auðvitað alltaf hverju tækifæri sem gefst, á tímum almennrar  hag- og viðskiptafræðimaníu, til þess að ræða dýpri leyndardóma hinna húmanísku fræða. Að lokinni lambasteik upp í íslenskri sveit á dögunum spannst eilítil umræða við hinn íslenskumælandi Bandaríkjamann um eðli og gerð íslenskunnar af hans sjónarhóli og mínum.

MERKILEGT hvað íslenska er skáldlegt tungumál, sagði hann. Það er endalaust hægt að búa til ný orð. Þetta er svona tungumál fyrir skáld. Já, það er alveg rétt, sagði ég. Og það sem er skemmtilegt við þetta er það, að allir Íslendingar taka þátt í þessu. Ný orð verða til, og þau eru síðan notuð af öllum. Tökum orð einsog “sími”. Það hefði verið einfaldasta mál að kalla fyrirbærið “telefón”, en Íslendingar gerðu það ekki.

JÁ, einmitt, sagði hann. Interesting.  Og meira að segja unglingarnir, hélt ég áfram stoltur, þeir segja ekki “dude” eins og í Ameríku heldur segja þeir “gaur”. Það er gamalt og gott íslenskt orð. Og þeir fara heldur ekki á “skateboard” heldur fara þeir á “bretti”.

JÁHÁ, sagði hann. Það er gaman að þessu. Yngsta kynslóðin ber meira að segja umhyggju fyrir tungumálinu. En segðu mér annað. Ég tók eftir því að osturinn sem ég var að borða er með rotvarnarefnum. Hvernig stendur á því? Í Bandaríkjunum er komið svo mikið “awareness” fyrir öllum svona hlutum. Hvers vegna er íslenskur ostur með rotvarnarefnum? Hvað er íslenska orðið yfir “awareness”?

TJA, sagði ég. Nú veit ég ekki. Eftir að hafa fallist á það að íslenskan væri jú tungumál fyrir skáld datt mér helst í hug að segja að íslenskan væri þar með ekki tungumál sem næði vel utan um félagsleg framþróunarhugtök. “Vitundarvakning” og “aukin meðvitund” væri jú notað, tuldraði ég, en hann horfði bara á mig og hristi höfuðið.

Birtist sem bakþankar í Fréttablaðinu 8.september 2007.


Höfundur

Guðmundur Steingrímsson
Guðmundur Steingrímsson
Tölvupóstur: gummisteingrims@gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband