Nú í vikunni urðu nokkrir ferðamenn á hvalaskoðunarbát við Húsavík vitni að þeim einstaka viðburði, en þó ekki alveg fáheyrðum, að nokkrir drápshvalir, sem við köllum upp á íslenskuna háhyrninga, veittust að hrefnu einni með skætingi, drápu hana á korteri og átu eins og þeir kynnu enga mannasiði.
VIÐBURÐURINN rataði að sjálfsögðu á baksíður enda um mikið sjónarspil að ræða og ferðamönnum mun víst hafa orðið nokkuð brugðið. Heyrst hefur reyndar úr hvalaskoðunarbransanum að með þessu sé búið að hækka nokkuð væntingar fólks um það hvað kunni að sjást í slíkum ferðum. Nú vonar fólk að sjálfsögðu innst inni að það fái að sjá háhyrninga drepa hrefnu.
EINNIG vekur atburður sem þessi þónokkrar spurningar um dýravernd. Nú er viðbúið að hvalverndunarsinnum verði um og ó. Það að menn hætti að drepa dýr tryggir nefnilega ekki að dýr séu þar með ekki drepin. Vitnisburði um það má sjá víða í dýraríkinu. Fálkar drepa mýs, blettatígar alla skapaða hluti, flóðhestar menn, birnir menn, híenur gnýi, kettir fugla og nú sem sagt, eins og komið hefur fram, háhyrningar hrefnur. Þetta allt saman hefur kannski gleymst að taka með í reikninginn í dýraverndunarhreyfingunni. Hvað segir Paul Watson? Eru hárhyrningar komnir á svartan lista? Er yfirlýsingar að vænta?
KEMUR í ljós. Frásögnin af þessu vakti í öllu falli nokkra athygli. Á baksíðu blaðs var atburðinum lýst þannig að háhyrningarnir hefðu verið mjög skipulagðir og að greinilega hafi verið um alvana drápshvali að ræða. Hér voru semsagt engir aukvisar á ferð. Sumir vilja jafnvel meina að hvalirnir hafi verið með tattú.
ORÐRÆÐAN um skipulagða glæpastarfsemi í mannheimum gegnsýrði þannig frásögnina af hrefnudrápinu. Hér var klíka á ferð. Komin til Íslands til þess að skapa usla, drepa og éta. Maður sér fyrir sér forystuháhyrning, kannski launson Keikó, gefa bendingar með uggum og sporði, þegar klíkan nálgaðist hina óviðbúnu hrefnu: Þið þrír farið til hægri, þið fjórir til vinstri og þið fimm farið beint áfram, hvíslaði Keikóson. Svo gerum við árás þegar ég segi búúúúú.
ÞETTA er umhugsunarefni. Ef skipulögð glæpastarfsemi er farin að gera vart við sig í heimi dýranna er álitamál hvort ekki eigi að stofna greiningardeild sem aflar gagna og grípur til fyrirbyggjandi ráðstafana. Ég er nokkuð viss um að einhvers staðar í kerfinu iðar embættismaður í skinninu við tilhugsunina um að fá að setja forsprakkann á skrá.
Birtist sem bakþankar í Fréttablaðinu 26.júlí 2008.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 10.11.2008 | 01:32 | Facebook
Tenglar
Skarpir pennar
- Ólína Þorvarðar
- Kalli Matt
- Helgi Seljan
- Konur á trúnó
- Árni Páll
- Gauti Egg
- Dagur Egg
- Oddny Sturlu
- Össur Skarp
- Helga Vala
- Gudríður Arnardóttir
- Dofri Hermanns
- Katrín Júl
- Þórunn Sveinbjarnar
- Björgvin Sig
- Róbert Marshall
- Kristrún Heimis
- Mörður Árna
- Helgi Hjörvar
- Steinunn Valdís
- Sigmar Guðmunds
- Ágúst Ólafur
- Bryndís Ísfold
- Örn Úlfar
Hljómsveitin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 395345
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- brynhildur
- dolli-dropi
- agnar
- alcandiary
- malacai
- almaogfreyja
- almapalma
- andreaolafs
- ural
- aas
- agustakj
- hof
- asgeirgudmunds
- aslaugs
- heilbrigd-skynsemi
- baldvinj
- bardurih
- bergruniris
- bergrun
- kaffi
- beggipopp
- bergthora
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- bjorkv
- heiddal
- bleikaeldingin
- eyvar
- gattin
- bryndisfridgeirs
- bryndisisfold
- dagga
- limped
- dabbi
- dofri
- madamhex
- egillg
- saxi
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- elfur
- elinora
- ellasprella
- eirikuro
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- disill
- eyglohardar
- eyvi
- ea
- fanney
- fararstjorinn
- feministi
- finnurtg
- finngolfsson
- hressandi
- ulfarsson
- gilsneggerz
- gislihjalmar
- gudni-is
- gudjonbergmann
- mosi
- thjalfi
- hugs
- gudmbjo
- lostintime
- gudrunarbirnu
- ghasler
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- laugardalur
- gylfigisla
- halldorbaldursson
- kiddih
- hallurg
- nesirokk
- hannibal
- hhbe
- handsprengja
- skinkuorgel
- 730bolungarvik
- heidistrand
- heidathord
- latur
- heimirthor
- mjollin
- helgadora
- hehau
- 730
- helgisan
- belle
- kjarninn
- hlekkur
- hlynurh
- kolgrimur
- hlynur
- birkire
- hrafnhildurolof
- don
- hrannarb
- hreinsi
- hrolfur
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hordur-stefansson
- hoskuldur
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- sarcasticbastard
- jara
- ingisund
- ingo
- ingvarvalgeirs
- id
- irisarna
- bestiheimi
- hansen
- joik7
- skallinn
- jonsigurjonsson
- drhook
- jonthorolafsson
- juljul
- heringi
- kristinnj
- kiddijoi
- killerjoe
- kjarrip
- hemmi
- kerla
- einarsson
- kristjanmoller
- kiddip
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- magnusl
- gummiarnar
- markusth
- matti-matt
- maggabest
- millarnir
- poppoli
- olafursv
- ljosvellingar
- tabergid
- olofyrr
- omarragnarsson
- paul
- pallieinars
- palmig
- doktorper
- perlaheim
- pro-sex
- rungis
- lovelikeblood
- sigfus
- sign
- danmerkufarar
- safi
- siggikaiser
- siggisig
- smari-karlsson
- stebbifr
- fletcher
- geislinn
- steindorgretar
- ses
- manzana
- kosningar
- sunnaros
- svenni
- svenni71
- sverrir
- saethorhelgi
- sollikalli
- tinnaeik
- tidarandinn
- torfusamtokin
- tommi
- truno
- urkir
- sverdkottur
- valdiher
- valdisa
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- kennari
- thorsteinnerlingsson
- thorarinnh
- thordistinna
- toddi