Þegar ég sat yfir kaffibolla í vikunni og hlustaði í einn eitt skiptið á umræður í sjónvarpi um skort á lausafjármagni bankanna varð mér skyndilega nóg um. Í tvo mánuði hef ég varla hitt fólk öðru vísi en að á einhverjum tímapunkti setji einhver upp sposkan svip, klóri sér í hökunni, og haldi því fram að nú sé allt að fara til helvítis.
ÉG sjálfur hef verið jafnsekur og aðrir og margoft hafið fílósóferingar á förnum vegi um mögulegar hættur sem steðja að rekstri bankanna og þar með þjóðarbúinu. Þetta fer auðvitað allt til fjandans, minnir mig að ég hafi sagt rétt í þann mund er ég steig upp úr pottinum í Neslauginni í síðustu viku. Svartsýni hentar alltaf betur til spjalls við kunningja en bjartsýni, sérstaklega í laugunum. Enginn er bjartsýnn í potti.
NÚ hefur það lengi verið fyrirliggjandi að erfiðleikar væru framundan. Húsnæðisverð hefur rokið upp. Nú mun það lækka. Svona eru efnahagsmál. Bylgja fer upp, bylgja fer niður. Ég efast ekki um að mikill vandi steðjar að fjármálalífinu og kannski fer allt í kalda kol, en samt get ég ekki að því gert: Þetta er farið að bera keim af vissri þörf fyrir drama.
ÉG bíð eftir því að einhver falli í yfirlið út af skorti á lausafjármagni bankanna. Það gæti gerst ef samverkandi þættir of mikillar kaffidrykkju, næringarskorts og bölsýni ásamt stöðugri efnahagsumræðu í ljósvakamiðlum í bakgrunni sem hefur stressaukandi áhrif verða til þess að ungir menn fara að of-anda, eða hyperventilera.
EFNAHAGSMÁL eru viðfangsefni. Niðursveifla er verkefni. Mestu sérfræðingar þjóðarinnar sáu erfiðleikana fyrir. Það var búið að spá þessu. Þeir sem stjórna, bönkum og landi, hefðu líklega mátt hlusta betur og haga málum skynsamlegar, en svona er það.
NÚ þarf ríkisstjórnin að bíta á jaxlinn og kannski halda einn töflufund eða svo með viðeigandi aðilum. Gera plan. Búa til excel-skjal. Með samhentu átaki er hægt að leysa svona verkefni. Sjálfur mun ég væntanlega halda áfram að hrista hausinn í pottinum á meðan, hafa áhyggjur af skammtíma fjárskuldbindingum útlánastofnana, klóra mér í hökunni og segja að allt sé að fara í bál og brand og styðja mig við ljósastaur á leiðinni heim út af svima, nánast yfirliði, vegna of-öndunar, með blautt sunddót undir handleggnum. Eins og sannur Íslendingur upplifi ég að sjálfsögðu hinar manísk-depressívu sveiflur efnahagslífsins í sálartetrinu.
Birtist sem bakþankar í Fréttablaðinu 19.apríl 2008.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 10.11.2008 | 01:03 | Facebook
Tenglar
Skarpir pennar
- Ólína Þorvarðar
- Kalli Matt
- Helgi Seljan
- Konur á trúnó
- Árni Páll
- Gauti Egg
- Dagur Egg
- Oddny Sturlu
- Össur Skarp
- Helga Vala
- Gudríður Arnardóttir
- Dofri Hermanns
- Katrín Júl
- Þórunn Sveinbjarnar
- Björgvin Sig
- Róbert Marshall
- Kristrún Heimis
- Mörður Árna
- Helgi Hjörvar
- Steinunn Valdís
- Sigmar Guðmunds
- Ágúst Ólafur
- Bryndís Ísfold
- Örn Úlfar
Hljómsveitin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 395345
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- brynhildur
- dolli-dropi
- agnar
- alcandiary
- malacai
- almaogfreyja
- almapalma
- andreaolafs
- ural
- aas
- agustakj
- hof
- asgeirgudmunds
- aslaugs
- heilbrigd-skynsemi
- baldvinj
- bardurih
- bergruniris
- bergrun
- kaffi
- beggipopp
- bergthora
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- bjorkv
- heiddal
- bleikaeldingin
- eyvar
- gattin
- bryndisfridgeirs
- bryndisisfold
- dagga
- limped
- dabbi
- dofri
- madamhex
- egillg
- saxi
- eirikurbergmann
- eirikurbriem
- elfur
- elinora
- ellasprella
- eirikuro
- skotta1980
- kamilla
- evropa
- disill
- eyglohardar
- eyvi
- ea
- fanney
- fararstjorinn
- feministi
- finnurtg
- finngolfsson
- hressandi
- ulfarsson
- gilsneggerz
- gislihjalmar
- gudni-is
- gudjonbergmann
- mosi
- thjalfi
- hugs
- gudmbjo
- lostintime
- gudrunarbirnu
- ghasler
- zeriaph
- gunnaraxel
- gbo
- laugardalur
- gylfigisla
- halldorbaldursson
- kiddih
- hallurg
- nesirokk
- hannibal
- hhbe
- handsprengja
- skinkuorgel
- 730bolungarvik
- heidistrand
- heidathord
- latur
- heimirthor
- mjollin
- helgadora
- hehau
- 730
- helgisan
- belle
- kjarninn
- hlekkur
- hlynurh
- kolgrimur
- hlynur
- birkire
- hrafnhildurolof
- don
- hrannarb
- hreinsi
- hrolfur
- hvitiriddarinn
- hordurj
- hordur-stefansson
- hoskuldur
- ibbasig
- ingabesta
- ingibjorgstefans
- sarcasticbastard
- jara
- ingisund
- ingo
- ingvarvalgeirs
- id
- irisarna
- bestiheimi
- hansen
- joik7
- skallinn
- jonsigurjonsson
- drhook
- jonthorolafsson
- juljul
- heringi
- kristinnj
- kiddijoi
- killerjoe
- kjarrip
- hemmi
- kerla
- einarsson
- kristjanmoller
- kiddip
- kvenfelagidgarpur
- lauola
- lara
- magnusl
- gummiarnar
- markusth
- matti-matt
- maggabest
- millarnir
- poppoli
- olafursv
- ljosvellingar
- tabergid
- olofyrr
- omarragnarsson
- paul
- pallieinars
- palmig
- doktorper
- perlaheim
- pro-sex
- rungis
- lovelikeblood
- sigfus
- sign
- danmerkufarar
- safi
- siggikaiser
- siggisig
- smari-karlsson
- stebbifr
- fletcher
- geislinn
- steindorgretar
- ses
- manzana
- kosningar
- sunnaros
- svenni
- svenni71
- sverrir
- saethorhelgi
- sollikalli
- tinnaeik
- tidarandinn
- torfusamtokin
- tommi
- truno
- urkir
- sverdkottur
- valdiher
- valdisa
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- kennari
- thorsteinnerlingsson
- thorarinnh
- thordistinna
- toddi