Leita í fréttum mbl.is

Vel að málum staðið

Ég verð að segja að ég er nokkuð ánægður með hvernig flokkarnir tveir hafa staðið að stjórnarmyndunarviðræðunum. Ekki nokkur skapaður hlutur hefur lekið út þótt báðir þingflokkar séu stórir og mögulegir lekar því víða fyrir hendi. Þetta er nefnilega dálítið mikilvægt í svona ferli. Brosandi leiðtogarnir hafa haldið vel á spöðunum. Það er góður grundvöllur fyrir traust.

Þetta gengur líka þvert á þann hola málflutning Moggans, sem hann hefur haldið nokkuð á lofti undanfarið, að Samfylkingunni sé ekki treystandi.  Dómsdagsvitleysa það.

Nú bíð ég bara spenntur eftir málefnasamningnum sem verður lagður fyrir flokksstjórn í kvöld.

Mun lesa hann spjaldanna á milli sem metsölubók væri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vissulega hræða sporin en fólk gerir nú vonandi sömu mistökin tvisvar! Þá er að vona að hér komist á stjórn sem er jafn sterk í öllum ráðunneytum, ekki bara Sjálfstæðisflokks ráðuneytunum.

Framsókn er farin í það minnsta og komin í stjórnarandstöðu.

Það er gott í bili.

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 16:05

2 Smámynd: Kristján Pétursson

Maður bíður spenntur eftir málefnasamningnum,hvað verður  m.a.gert með Írakmálið,heilbrigðismálin,mál aldraðra og öryrkja,sjávarútvegsmálin og hvernig verður tekið á verðbólgunni og okurvöxtunum.Það verður fóðlegt að sjá málmiðlanir flokkanna,það segir manni margt um framhaldið.

Kristján Pétursson, 22.5.2007 kl. 17:55

3 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ég bíð laaaaaangspenntust fyrir heilbrigðismálunum

Inga Lára Helgadóttir, 22.5.2007 kl. 19:41

4 identicon

Þau voru bæði frábær í kvöld formennirnir okkar. Nú er að sjá hvað gerist.

kk

'jb 

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 22:53

5 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Þetta lítur vel út allt saman en ég hefði viljað hafa Ingibjörgu heimavið og í fjármálaráðuneytinu það er svo valdamikið ráðuneyti ræður flestu held ég.  Er heldur ekki alveg sátt við Guðlaug Þór í heilbrigðisráðuneytinu en það aldrei á allt kosið.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 23.5.2007 kl. 12:33

6 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Þetta byrjar allt vel og lofar góðu, vonandi að framhaldið verði í stíl.

Ágúst Dalkvist, 23.5.2007 kl. 13:01

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Svona í augnablikinu virðist þetta lofa góðu.  Flokkarnir hafa öll tækifæri til að spila mjög flott úr öllum þeim málum sem þeir vilja. En það er ekki nýtt í sögunni að menn byrja rosalega vel og allt það en síðan sígur á ógæfuhliðina. Ég vona hinsvegar að þessi nýja stjórn standist allar freysingar og að allt gangi í haginn.

Sigurður Sigurðsson, 23.5.2007 kl. 13:36

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Þessi stjórn ætti að geta orðið mjög farsæl og kanski  situr hún í 2 kjörtímabil.
Næstu 8 ár án vg í stjórn - frábært.

Óðinn Þórisson, 23.5.2007 kl. 16:51

10 identicon

Og nú er stjórnarsáttmálinn kominn. Og þunnur var hann. Ekkert bitastætt í honum. Þetta verður meiri hægristjórn heldur en með framsókn. Svei attan. Og nú á að slátra íbúðalánasjóð og einkavæða heilbrigðiskerfið. Er þetta nútíma jafnaðarstefna? Eða bara Blair - ismi?

Ætli það fari ekki að líða að því að maður segi sig úr Samfylkingunni.

Sigurður H. Einarson (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Steingrímsson
Guðmundur Steingrímsson
Tölvupóstur: gummisteingrims@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband