Leita í fréttum mbl.is

Vísa

Í framhaldi af síðasta pistli mínum í Fréttablaðinu fékk ég senda vísu. Nokkuð góð. Höfundur heitir Hallmundur og vísan er svona: 

 

Ég vil hér á okkar stað

öllum banna að dvelja

sem afhafst gætu eitthvað það

sem óheppilegt má telja.

 

Enn ein undarleg vika er liðin á skerinu. Nafnlaust bréf og mögulegir hótelgestir. Hvort tveggja er dæmi um eitthvað sem þjóðfélög í eðlilegu jafnvægi eiga ekki að gera mikið mál út af... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æi hvað mér finnst þetta vel orðað hjá þér .... þjóðfélag í eðlilegu jafnvægi gerir ekki mál úr þessu hóteldæmi ... akkurat það er málið.

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 02:50

2 identicon

Sælir ágætu stjórnmálamenn  Að undanförnu hafa kjörni fulltrúar okkar tekið þátt í því að úthrópa útlendinga, sem eru frjálsir ferða sinna í öðrum löndum hins vestræna heims og tekið undir öldu "fordómavæðingar" í íslensku samfélagi. Allt í einu er frelsið lagt á hilluna og hópi fólks sem vill heimsækja okkar land útskúfað af stjórnmálamönnum. Allir stimplaðir sem barnaíðingar, kynferðisglæpamenn og stundandi mansal. Lögreglan ekki látin ein um að meta hvort ástæða sé til að taka á "meintum" brotamönnum, ef þeir eru þá í hópnum, heldur hoppað með í "fordómavæðinguna".  Hvernig getur það átt sér stað í okkar annars ágæta lýðveldi að fulltrúar allra flokka fari með sömu þuluna. Þegar ekki er lengur að finna mun á D, B, S, F og VG sé ég ekki lengur til hvers ég ætti yfir höfuð að kjósa einhvern þessara flokka. Menn geta mótmælt klámi, Ísrael, Falun Gong, Bandaríkjunum, Kína, Svíþjóð og hverju einu sem þá listir en stjórnmálamenn eiga að stíga varlega til jarðar - Alltaf.  Þeir eiga að passa að gæta hófs í allri nálgun sinni og við yfirlýsingar.  Ef okkar kjörnu fulltrúar ætla ekki að koma frelsinu til varnar þá er illt í efni.  Frelsi er æðst allra gilda og það má alldrei skerða nema brýna nauðsyn beri til. Ég vona svo sannarlega að stjórnmálamenn átti sig á í hverju þeir hafa tekið þátt og það áður en aftur kemur upp "sambærilegt" málefni í samfélaginu. Að síðustu kæru stjórnmálamenn virðið orð John Stuarts Mill sem sagði: "Einstaklingurinn beri aðeins ábyrgð gagnvart samfélaginu á þeim athöfnum sínum sem skaði hagsmuni annarra, en ekki þeim sem varða aðeins hann sjálfan. Því er hvorki ríkinu né öðru fólki heimilt að skerða athafnafrelsi einstaklingsins nema í sjálfsvörn. En það er ekki fyrst og fremst ríkisvaldið sem Mill beinir gagnrýni sinni að, heldur alræði meirihlutans, hin oft og tíðum þögla skoðanakúgun sem leitast við að steypa alla í sama mót og heftir þannig þroska einstaklingsins. Það er samfélaginu nauðsynlegt að meðlimir þess búi við hugsana- og málfrelsi og fái að þroskast í fjölbreytileika sínum til þess að allar skoðanir fái færi á að njóta sín, því það er aðeins í rökræðunni sem ljóst verður hvort skoðun sé sönn eður ei. Auk þess er hver sú skoðun sem við aðhyllumst ekki einlæg og hjartfólgin sannfæring, sem ræður breytni okkar, fyrr en við höfum tekist á við gagnrýni og efasemdaraddir."kveðjaSveinn V. Ólafsson

Sveinn V. Ólafsson (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 00:05

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fólk hefur mismunandi tilfinningu fyrir tungunni . Ef þér finnst þetta góð vísa Guðmundur þá tek ég það svo að þú hafir ekkert brillerað í Íslensku á námsárum þínum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.2.2007 kl. 13:51

4 identicon

 

 Gunnar. held þú sért að tala um stafsetningarvillu.  Allavegana ætti Guðmundur að hafa ágætt vald á tungunni þar sem hann er með íslenskupróf frá Háskólanum.  

Sandra L (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 14:08

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei ég er ekki að tala um stafsetningavillu. Hrynjandin og atkvæði vísunnar eru út og suður. Auk þess er innihaldið frekar grunnt. Ég myndi aldrei kalla svona "góða" vísu...ekki heldur nokkuð góða. En ég gagnrýni fólk heldur ekki fyrir stafsetningavillur, í fyrsta lagi vegna þess að ég hef ekkert efni á því og í öðru lagi þá gerir fólk bara eins vel og það getur í þeim efnum. Innihald þess sem fólk segir hér er meira virði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.2.2007 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Steingrímsson
Guðmundur Steingrímsson
Tölvupóstur: gummisteingrims@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband